|
Það er með sannri ánægju sem við tilkynnum að Smákranar ehf. eru byrjaðir að selja vinnupalla sem kallast Teletower á ensku. Þetta eru mjög sniðugir pallar þar sem þeir eru samanbrjótanlegir og taka afar lítið pláss í flutningi og geymslu. Þegar pallurinn er svo reistur eru hliðarnar reistar eins hátt og þörf krefur og pallurinn svo settur á – í allt að 2m hæð. Að auki er pallurinn framleiddur úr áli og svo úr koltrefjum en þeir leiða ekki rafmagn.
Nú þegar höfum við selt vinnupalla – m.a. koltrefja palla (carbon fiber)til Orkuvirkis hf. sem nota þá í straumstækkunarverkefni Rio Tinto Alcan. Eru menn þar á bæ mjög ángæðir með pallana.
Frekari fyrirspurnir berist til Erlings:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða hringið í síma 699 4241. |
|
|
Í október mánuði voru allir smákranar fyrirtækisins notaðir í ansi sérstakt verkefni. Eins og landsmenn vita nú er Skemmtigarðurinn starfræktur þar með sínum skemmtitækjum. Smákranar okkar voru einmitt notaðir til að setja þar upp stærsta tækið – “Sleggjuna” svokölluðu.
Að auki varð að koma inn stórum lyftara því aðalstykkið vó um 6 tonn. Tekið var 320kg. gler í burtu og lyftarinn keyrður í gegnum gluggarammann og glerið svo sett aftur í. Svo voru öll 4 tækin notuð við uppsetninguna á stóra stykkinu. Heildarþyngd tækisins er um 10 tonn.
Verkefnið tókst mjög vel og hefur landinn verið að skemmta sér konunglega að undanförnu við að fá smá velgju í magann. Smákranar ehf. óska Skemmtigarðinum til hamingju með glæsilegt tæki og aðstöðu. |
|
Smákranar ehf. aðstoðuðu í september mánuði við glerskipti í húsnæði Distica / Vistor í Garðabæ. Þar þurfti að skipta um tæplega 100 gler í pýramídagluggum sem voru í miðjum byggingunum. Vel gekk að skipta út glerinu þar sem góð samvinna ísetningamanna og kranastjóra var í fyrirrúmi. Þurfti í öll skipti að segja til með talstöðvum. Það voru fræknir kappar hjá Kanti ehf. sem sáu um glerskiptin. |
|
Í september mánuði fórum við í fiskimjölsverksmiðjuna á Akranesi til að aðstoða við uppsetningu á hlaupaketti inni í verksmiðjunni. Aðstæður voru allar hinar þrengstu – fyrst þurfti að setja upp tvo 1.500 kg. stálbita sem hlaupakötturinn yrði settur ofan á. Þeim var skáskotið með ótrúlegum hætti á sinn stað og svo var hinn 1.600kg hlaupaköttur hífður upp. Eins og svo oft áður voru einungis nokkrir sentimetrar aflögu en með góðri samvinnu tókst að setja köttinn á sinn stað. Var almenn ánægja með aðgerðir og fóru menn afar sáttið í helgarfrí. |
|
Norðurál hf. á Grundartanga fékk nýverið afhentan nýjan UNIC URW 295 smákrana en hann er fyrsti kraninn sem er seldur hér á landi. Þar verður hann notaður við viðhald á ýmsum þáttum framleiðslunnar en helst í steypuskála þar sem hann mun hífa hluta úr færiböndum þeim sem álhleifarnir ganga eftir. Kraninn er knúinn Kubota diesel vél en einnig með rafmagnsmótor. Þá er hann með þráðlausri fjarstýringu og fullkominni lyftitölvu (Safe Load Indicator).
Sama dag og og kraninn var afhentur var hann notaður í að skipta um 250kg tjakka í pressu. Það gekk mjög vel og að sögn Páls Ólasonar steypuskálastjóra voru menn mjög ánægðir með virkni kranans og eiginleika og að kraninn myndi koma sér vel við hinar ýmsu hliðar framleiðslunnar.
Smákranar ehf. óska Norðuráli hjartanlega til hamingju með nýja kranann. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |